Í gær, 6. ágúst, var þúsundasta laxinum þetta sumarið í Jöklu landað. Það er í annað skipti sem sá áfangi næst en árið 2024 veiddust líka yfir þúsund laxar. Það ár var yfirfallið ekki að trufla veiðimenn fyrr en seint og síðar meir. Vatnsstaða í Hálslóni er einnig hagstæð nú og vantar 15 metra upp…
Category: Fréttir 2026
Fyrsti laxinn á land
Veiðin hefur gengið treglega fyrstu dagana vegna mikils vatns í Jöklu. Að lokum náðist þó fyrsti laxinn á land. Það var enskur veiðimaður á fyrstu vaktinni sinni sem landaði gullfallegum fiski neðarlega á Blöndubreiðu. Valbeinn var flugan sem skilaði þeim fyrsta þetta árið. Þar með er búið að opna veiðibókina og vonandi fjölgar hratt í…
Veiði hafin og grill á sunnudaginn
Veiði hófst í Jöklu 23. júní. Hún fór ekki eins vel af stað og í fyrra þar sem mikið vatn er bæði í Jöklu sjálfri og þverám. Fiskur hefur ekki náð að ganga upp fyrir Steinboga af þeim sökum og Laxá og Kaldá eru mjög kaldar vegna leysingavatns. Strax á opnunardegi sást þó til laxa…
Ný arðskrá samþykkt á aðalfundi
Aðalfundur Veiðifélags Jökulsár á Dal fór fram í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí og er aðalfundargerðin aðgengileg hér á síðunni. Í erindum gesta kom ýmislegt fram. Þröstur Elliðason leigutaki sagðist bjartsýnn á veiðisumarið. Kári Lafever frá Landsvirkjun sýndi spá um yfirfallið og það eru aðeins helmingslíkur á að Hálslón fari á yfirfall í ágústs enda vatnsstaða…
Aðalfundur 2026 sunnudaginn 31. maí
Stjórn veiðifélagsins boðar hér með til aðalfundar Veiðifélags Jökulsár á Dal í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí kl. 14. Fundarboð mun berast í pósti til félagsmanna á næstu dögum. Með fundarboðinu eru gögn varðandi nýja arðskrá sem ætlunin er að afgreiða á aðalfundinum ef næg fundarsókn næst, en það þarf 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna til að samþykkja…
Aðalfundur 2026 verður 31. maí
Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal hefur samþykkt að boða til aðalfundar í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí kl. 14.00. Dagskrá verður í samræmi við samþykktir félagsins en að auki verður lögð fram til afgreiðslu ný arðskrá. Fundarboð og gögn verða send til félagsmanna í pósti í næstu viku. Kaffiveitingar verða á fundinum í boði félagsins.
Seinkun á aðalfundi 2026
Vaninn hefur verið að halda aðalfund veiðifélagsins seinnipartinn í apríl. Þetta árið verður seinkun á aðalfundi og gerir stjórn ráð fyrir að halda hann undir lok maí. Ástæðan er hversu seint gögn um botngerðarmat og uppeldisskilyrði skiluðu sér frá Haf og vatni. Þau gögn eru grundvöllur fyrir uppfærslu arðskrár þar sem uppeldisskilyrðin bætast við þegar…