Fyrsti laxinn á land

Veiðin hefur gengið treglega fyrstu dagana vegna mikils vatns í Jöklu. Að lokum náðist þó fyrsti laxinn á land. Það var enskur veiðimaður á fyrstu vaktinni sinni sem landaði gullfallegum fiski neðarlega á Blöndubreiðu. Valbeinn var flugan sem skilaði þeim fyrsta þetta árið. Þar með er búið að opna veiðibókina og vonandi fjölgar hratt í…

Veiði hafin og grill á sunnudaginn

Veiði hófst í Jöklu 23. júní. Hún fór ekki eins vel af stað og í fyrra þar sem mikið vatn er bæði í Jöklu sjálfri og þverám. Fiskur hefur ekki náð að ganga upp fyrir Steinboga af þeim sökum og Laxá og Kaldá eru mjög kaldar vegna leysingavatns. Strax á opnunardegi sást þó til laxa…

Ný arðskrá samþykkt á aðalfundi

Aðalfundur Veiðifélags Jökulsár á Dal fór fram í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí og er aðalfundargerðin aðgengileg hér á síðunni. Í erindum gesta kom ýmislegt fram. Þröstur Elliðason leigutaki sagðist bjartsýnn á veiðisumarið. Kári Lafever frá Landsvirkjun sýndi spá um yfirfallið og það eru aðeins helmingslíkur á að Hálslón fari á yfirfall í ágústs enda vatnsstaða…