1000 laxa múrinn rofinn

Í gær, 6. ágúst, var þúsundasta laxinum þetta sumarið í Jöklu landað. Það er í annað skipti sem sá áfangi næst en árið 2024 veiddust líka yfir þúsund laxar. Það ár var yfirfallið ekki að trufla veiðimenn fyrr en seint og síðar meir. Vatnsstaða í Hálslóni er einnig hagstæð nú og vantar 15 metra upp á að renni yfir. Því eru litlar líkur á að yfirfallið láti á sér kræla fyrr en í september og því fjörugar veiðivikur framundan. Byrjun veiðiársins var þung vegna seinna leysinga og í raun er ekki nema mánuður síðan veiði hófst fyrir alvöru. Í hitabylgjunni settu leysingar við Snæfell einnig strik í reikninginn og áin varð óveiðanleg í nokkra daga. Það liggur því ljóst fyrir að veiðisumarið 2026 verður nýtt metár í Jöklu. Bara spurning hvort að áin rjúfi 2000 laxa múrinn. Á meðfylgjandi mynd má sjá einn af þeim ánægðu erlendu veiðimönnum sem hafa notið þess að veiða í Jöklu í sumar.

Leave a comment