Um helgina komst Jökla í 2000 veidda laxa þetta sumarið. Það er nýtt met og er áin í öðru sæti á veiðitölulistanum næst á eftir Þverá/Kjarrá. Áfanganum var fagnað með köku og tilheyrandi. Ljóst er að ekkert yfirfall kemur á veiðitímabilinu í ár og því verður hægt að veiða út september. Hverjar lokatölur fyrir Jöklu verða þetta árið er því óvíst en eitthvað af lausum veiðileyfum næstu vikur. Áin er svo sannarlega búin að sýna hvað í henni býr þegar veiðimenn fá frið fyrir jökulvatninu.
