
Veiði hófst í Jöklu 23. júní. Hún fór ekki eins vel af stað og í fyrra þar sem mikið vatn er bæði í Jöklu sjálfri og þverám. Fiskur hefur ekki náð að ganga upp fyrir Steinboga af þeim sökum og Laxá og Kaldá eru mjög kaldar vegna leysingavatns. Strax á opnunardegi sást þó til laxa í Sjálfheldu og á öðrum degi var sett í stóran fisk í Arnarmel sem slapp eftir stutta viðureign.
Veiðifélagið minnir félagsmenn á að nk. sunnudag, 28. júní kl. 15:30, verður grillað við Hálsakot og vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta til að ræða málin eftir vor tiltekt við ána.
Meðfylgjandi mynd sýnir veiðimann frá Spáni að freista þess að endurtaka leikinn frá í fyrra og setja í fyrsta laxinn á Efri-Brúarbreiðu í Laxá.