Aðalfundur Veiðifélags Jökulsár á Dal fór fram í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí og verður aðalfundargerðin birt hér fljótlega. Í erindum gesta kom ýmislegt fram. Þröstur Elliðason leigutaki sagðist bjartsýnn á veiðisumarið. Kári Lafever frá Landsvirkjun sýndi spá um yfirfallið og það eru aðeins helmingslíkur á að Hálslón fari á yfirfall í ágústs enda vatnsstaða í lóninu aðeins þrisvar áður verið svona lág að vori. Ingi Rúnar Jónsson og Friðþjófur Árnason frá Hafrannsóknastofnun sögðu frá seiðarannsóknum og gerðu grein fyrir botngerðamatinu sem lagt er til grundvallar við uppfærslu arðskrár. Undir kosningum urðu engar breytingar á mannaskipan. Skúli Björn Gunnarsson og Gestur Hallgrímsson voru kosnir áfram til stjórnarsetu næstu þrjú ár og varamenn hinir sömu og áður, ásamt skoðunarmönnum og kjörbréfanefnd. Samþykkt var að greiða 70% af leigutekjum ársins út sem arð. Smávægileg breyting var gerð á samþykktum félagsins vegna reglugerðarbreytingar um fundarboðun.
Stærsta málefni fundarins var að afgreiða nýja arðskrá sem send hafði verið út með fundarboði. Skarphéðinn Smári Þórhallsson hjá Logg fór yfir hvernig hann deildi 2000 einingum fyrir uppeldisskilyrði niður á jarðir út frá niðurstöðum sérfræðinga Hafrannsóknastofnunar en samhliða því voru veiðitölur allt til 2025 notaðar við að uppfæra arðskrána sem telur nú 10.000 einingar í heild. Ný arðskrá var samþykkt eins og hún var kynnt í útsendum gögnum með fundarboði með öllum greiddum atkvæðum, 57 atkvæðum en atkvæðisbærir félagsmenn teljast 74. Fullnægir það skilyrði um að 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna þurfi til að samþykkja arðskrá á félagsfundi. Arðskrá verður nú send til Fiskistofu en lögum samkvæmt hefur sérhver félagsmaður rétt til að krefjast mats skv. VII. kafla laga nr. 61/2006, um lax- og silungsveiði enda komi sú krafa fram innan 2ja mánaða frá fundinum.