Stjórn veiðifélagsins boðar hér með til aðalfundar Veiðifélags Jökulsár á Dal í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí kl. 14. Fundarboð mun berast í pósti til félagsmanna á næstu dögum. Með fundarboðinu eru gögn varðandi nýja arðskrá sem ætlunin er að afgreiða á aðalfundinum ef næg fundarsókn næst, en það þarf 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna til að samþykkja hana. Lítilsháttar breyting á samþykktum félagsins er einnig kynnt í fylgigögnum og verður lögð fyrir fundinn þar sem ráðherra hefur gert þá breytingu á reglugerð um starfsemi veiðifélaga að ekki er lengur nauðsyn að boða félagsfundi með ábyrgðarbréfi þegar ráðstafa á veiðirétti eða breyta samþykktum.
Á aðalfundinum þann 31. maí munu Friðþjófur Árnason og Ingi Rúnar Jónsson, sérfræðingar Hafrannsóknarstofnunar, gera grein fyrir botngerðarmatinu sem lagt var til grundvallar við endurskoðun arðskrár (sjá skýrslu) og ræða um niðurstöður seiðarannsókna undanfarin ár. Þá mun leigutaki segja frá síðasta veiðiári og horfum á þessu og fulltrúi Landsvirkjunar koma með spá um hvenær von sé á yfirfallinu í ár.
Dagskrá aðalfundar er að öðru leyti hefðbundin og samkvæmt samþykktum. Kaffiveitingar verða í boði félagsins.