Fyrstu prentuðu veiðikortin fyrir Jöklu komu út hjá Veiðifélagi Jökulsár á Dal sumarið 2016 og svo endurbætt upplag 2018. Inn á þau eru merktir helstu veiðistaðir sem eru þekktir og hafa fengið nafn. Einnig veiðivegir og hvort koma eigi að veiðistað frá hægri eða vinstri bakka. Nýtt og endurbætt upplag kom út sumarið 2022. Vorið 2026 var aftur farið í að uppfæra og endurbæta kortin enda nokkrir nýir veiðistaðir bæst við. Þeir sem hafa áhuga á að nálgast prentuð kort (2026) geta nálgast þau hjá veiðiverði, Guðmundi Ólasyni. En hér á vefnum er hægt að sækja nýjustu gerð 2026 í pdf-skjali sem nýta má í snjallsíma eða skoða í tölvu. Einnig eru kortin hér í jpg-formi sem nýtist einnig í símum.
Jökla I pdf (frá Héraðsflóa að Húsármótum, ásamt Laxá og Kaldá)


Jökla II pdf (frá Hofteigi að Tregluhyl)
