Fyrsti laxinn á land

Veiðin hefur gengið treglega fyrstu dagana vegna mikils vatns í Jöklu. Að lokum náðist þó fyrsti laxinn á land. Það var enskur veiðimaður á fyrstu vaktinni sinni sem landaði gullfallegum fiski neðarlega á Blöndubreiðu. Valbeinn var flugan sem skilaði þeim fyrsta þetta árið. Þar með er búið að opna veiðibókina og vonandi fjölgar hratt í henni. Vekja má athygli á að uppfærð veiðikort eru komin hér inn á síðuna og hægt að nálgast prentuð hjá veiðiverði.

Leave a comment