2300 laxar skráðir

Veiði í Jöklu lauk 30. september og þá höfðu rúmlega 2300 laxar verið færðir til bókar, þar af eru um 100 laxar í þveránum. Með þessu veiðisumri er áin búin að sýna hvers hún er megnug þegar ekkert yfirfall kemur úr Hálslóni. Veiði var vel dreifð um alla á og nokkrir nýir veiðistaðir bættust við….

2000 laxar á land

Um helgina komst Jökla í 2000 veidda laxa þetta sumarið. Það er nýtt met og er áin í öðru sæti á veiðitölulistanum næst á eftir Þverá/Kjarrá. Áfanganum var fagnað með köku og tilheyrandi. Ljóst er að ekkert yfirfall kemur á veiðitímabilinu í ár og því verður hægt að veiða út september. Hverjar lokatölur fyrir Jöklu…

1000 laxa múrinn rofinn

Í gær, 6. ágúst, var þúsundasta laxinum þetta sumarið í Jöklu landað. Það er í annað skipti sem sá áfangi næst en árið 2024 veiddust líka yfir þúsund laxar. Það ár var yfirfallið ekki að trufla veiðimenn fyrr en seint og síðar meir. Vatnsstaða í Hálslóni er einnig hagstæð nú og vantar 15 metra upp…

Fyrsti laxinn á land

Veiðin hefur gengið treglega fyrstu dagana vegna mikils vatns í Jöklu. Að lokum náðist þó fyrsti laxinn á land. Það var enskur veiðimaður á fyrstu vaktinni sinni sem landaði gullfallegum fiski neðarlega á Blöndubreiðu. Valbeinn var flugan sem skilaði þeim fyrsta þetta árið. Þar með er búið að opna veiðibókina og vonandi fjölgar hratt í…

Veiði hafin og grill á sunnudaginn

Veiði hófst í Jöklu 23. júní. Hún fór ekki eins vel af stað og í fyrra þar sem mikið vatn er bæði í Jöklu sjálfri og þverám. Fiskur hefur ekki náð að ganga upp fyrir Steinboga af þeim sökum og Laxá og Kaldá eru mjög kaldar vegna leysingavatns. Strax á opnunardegi sást þó til laxa…

Ný arðskrá samþykkt á aðalfundi

Aðalfundur Veiðifélags Jökulsár á Dal fór fram í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí og er aðalfundargerðin aðgengileg hér á síðunni. Í erindum gesta kom ýmislegt fram. Þröstur Elliðason leigutaki sagðist bjartsýnn á veiðisumarið. Kári Lafever frá Landsvirkjun sýndi spá um yfirfallið og það eru aðeins helmingslíkur á að Hálslón fari á yfirfall í ágústs enda vatnsstaða…

Aðalfundur 2026 sunnudaginn 31. maí

Stjórn veiðifélagsins boðar hér með til aðalfundar Veiðifélags Jökulsár á Dal í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí kl. 14. Fundarboð mun berast í pósti til félagsmanna á næstu dögum. Með fundarboðinu eru gögn varðandi nýja arðskrá sem ætlunin er að afgreiða á aðalfundinum ef næg fundarsókn næst, en það þarf 2/3 atkvæðisbærra félagsmanna til að samþykkja…

Aðalfundur 2026 verður 31. maí

Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal hefur samþykkt að boða til aðalfundar í Brúarásskóla sunnudaginn 31. maí kl. 14.00. Dagskrá verður í samræmi við samþykktir félagsins en að auki verður lögð fram til afgreiðslu ný arðskrá. Fundarboð og gögn verða send til félagsmanna í pósti í næstu viku. Kaffiveitingar verða á fundinum í boði félagsins.

Seinkun á aðalfundi 2026

Vaninn hefur verið að halda aðalfund veiðifélagsins seinnipartinn í apríl. Þetta árið verður seinkun á aðalfundi og gerir stjórn ráð fyrir að halda hann undir lok maí. Ástæðan er hversu seint gögn um botngerðarmat og uppeldisskilyrði skiluðu sér frá Haf og vatni. Þau gögn eru grundvöllur fyrir uppfærslu arðskrár þar sem uppeldisskilyrðin bætast við þegar…

800 laxar fyrir yfirfall

Jökla fór á yfirfall að kvöldi 4. ágúst eftir hlýjan júlímánuð. Góð veiði var í ánni allri fram á síðasta dag og fiskur víða. Veiðimönnum tókst að landa 800 löxum sem er mun meiri veiði en verið hefur á sama tíma. Jökla er þetta sumarið ein fárra laxveiðiáa þar sem hefur verið almennileg veiði og…

500 laxa múrinn rofinn

Nú þegar mánuður er liðinn frá því byrjað var að veiða í Jöklu er búið að landa 500 löxum. Er það betri veiði en nokkru sinni áður á þessum tíma. Hólaflúð er sem fyrr sá veiðistaður sem er með flesta fiska, komnir yfir 130 þar á land en úr Steinboganum eru komnir yfir 80 laxar….

Fréttabréf og grill

Sunnudaginn 29. júní kl. 15:30 verður grillsamvera í Hálsakoti og hvetur stjórn landeigendur til að huga að tiltekt fyrir eigin landi áður en að því kemur. Enginn einn dagur verður tekinn í tiltekt frekar en í fyrra. Fréttabréf veiðifélagsins er komið út og ætti að berast í póstkassa félagsmanna næstu daga. Forsíðuna prýðir mynd af…