Seinkun á aðalfundi 2025

on

Vaninn hefur verið að halda aðalfund veiðifélagsins seinnipartinn í apríl. Þetta árið verður seinkun á aðalfundi og gerir stjórn ráð fyrir að halda hann undir lok maí. Ástæðan er hversu seint gögn um botngerðarmat og uppeldisskilyrði skiluðu sér frá Haf og vatni. Þau gögn eru grundvöllur fyrir uppfærslu arðskrár þar sem uppeldisskilyrðin bætast við þegar einingar á hverja jörð eru reiknaðar. Vinna við útreikningar kringum nýja arðskrá stendur yfir hjá Logg ehf. og ætlunin að leggja hana fyrir aðalfund í vor. Stjórn mun boða til aðalfundar með lögformlegum hætti þegar þeirri vinnu er lokið.

Leave a comment