Jökla komin í 1000 laxa þetta sumarið

Lax númer 1000 úr Jöklu þetta góða veiðisumar kom að var færður til bókar að morgni laugardags 7. september. Það var Norðfirðingurinn Guðrún Smáradóttir sem setti í laxinn og landaði honum í Arnarmel neðan við Laxárós (sjá meðfylgjandi mynd). Hængurinn sem var 60 sm tók rauðan frances. Þetta er í fyrsta skipti sem Jökla rýfur 1000 laxa múrinn og í tilefni þess var skellt í pönnukökur í veiðihúsinu og Þorvaldur P. Hjarðar formaður veiðifélagsins færði leigutaka hamingjuóskir. Með þessu er Jökla að sanna sig sem ein af bestu laxveiðiám landsins þegar yfirfallið lætur veiðimenn í friði. Ennþá vantar 1 m upp á að vatnshæð Hálslóns fari að renna yfir þröskuldinn og útlit fyrir að kuldi næstu daga muni hafa hemil á yfirfallinu um sinn.

Leave a comment