Eyðublöð

Á þessari síðu er að finna eyðublöð til útfyllingar vegna styrkumsókna, umboða og annars.

 

STYRKUMSÓKNIR VEGNA FRAMKVÆMDA TIL AÐ BÆTA AÐGENGI

Veiðifélag Jökulsár á Dal veitir styrki til landeigenda/ábúenda vegna framkvæmda sem stuðla að bættu aðgengi veiðimanna að veiðistöðum við Jökulsá á Dal. Veiðifélagið fékk 500.000 kr. styrk úr Fiskræktarsjóði fyrir árið 2020. Samþykkt hefur verið að hægt sé að sækja að hámarki um 200.000 kr. styrk til félagsins þetta árið. Stjórn hefur sett svohljóðandi verklagsreglur um styrkúthlutun.

  1. Hverjir geta sótt um styrk?. Veiðiréttarhafar við Jökulsá á Dal geta sótt um styrki til félagsins til að bæta aðgengi að veiðistöðum fyrir sínu landi.
  2. Hvað er styrkt? Styrkir eru veittir til slóða- og stígagerðar auk merkinga. Mótframlag skal vera a.m.k. 50% af kostnaði og getur m.a. verið í formi vinnu manna og véla. Hafa skal samráð við stjórn félagsins og leigutaka um framkvæmdir.
  3. Hvernig er sótt um?. Sótt er um styrk á eyðublaði sem hægt er að nálgast á heimasíðu félagsins. Á því er framkvæmd lýst og sett fram kostnaðaráætlun. Umsókn þarf að berast stjórn áður en ráðist er í framkvæmdir því að komið getur til forgangsröðunar á grundvelli fjármagns og mikilvægis framkvæmda. 
  4. Hversu háir eru styrkir? Fjárhæð styrkja getur verið breytileg milli ára og ákveður stjórn hámarksupphæð að vori og setur tímafrest fyrir umsóknir. 
  5. Hvernig er greitt? Greitt er eftir að framkvæmd er lokið. Skila þarf inn afritum af tímaskýrslum og reikningum sem sýna útlagðan kostnað og mótframlög ásamt stuttri skýrslu. Nálgast má eyðublað til skýrslugerðar á heimasíðu félagsins. 

Umsóknareyðublað     |   Skýrslueyðublað


UMBOÐ VEGNA FÉLAGSFUNDA

Hér er hægt að sækja eyðublað sem nota má til að veita umboð vegna félagsfunda.

Í 40 gr. Laga um silungs- og laxveiði nr. 61/2006 segir svo um atkvæðisrétt:

  • Ef eigendur jarðar eða veiðiréttar eða ábúendur jarðar eru fleiri en einn skulu þeir gera með sér skriflegan samning um það hver fari með atkvæðisréttinn og skal það tilkynnt veiðifélagi með sannanlegum hætti. Hið sama gildir þegar jörð hefur löglega verið skipt í ákveðnum hlutföllum milli eigenda.
  • Félagsmaður má fela öðrum að fara með atkvæði sitt, enda sé umboðið skriflegt og ekki eldra en þriggja mánaða. Geta skal umboðsins í fundargerðabók.

Í 9 gr. Reglugerð um starfsemi veiðifélaga nr. 345, 26 mars 2014 segir segir svo um Fyrirsvar jarða í sameign og atkvæði á fundi.

  • Tilkynna skal til veiðifélags um fyrirsvarsmann jarðar, séu eigendur fleiri en þrír fjárráða einstaklingar/lögaðilar, sbr. 9. gr. jarðalaga nr. 81/2004. Skriflegan samning um hver fari með atkvæðisrétt jarðar, sbr. 40. gr. laga nr. 61/2006 má því aðeins taka gildan á félagsfundi, að hann sé undirritaður af öllum eigendum viðkomandi jarðar. Umboð til að greiða atkvæði á fundi er því aðeins gilt að umboðið sé undirritað af öllum eigendum jarðar séu þeir fleiri en einn og sé eigi eldra en þriggja mánaða. Geta skal umboðsins í fundargerðabók.

Á heimasíðu Landsambands veiðifélaga er einnig að finna samantekt úr álitsgerð vegna atkvæðisréttar jarða á vettvangi veiðifélaga.


EYÐUBLAÐ VEGNA ARÐGREIÐSLNA

Þar sem jarðir eru skráðar í eigu tveggja eða fleiri einstaklinga þarf að liggja fyrir skjal um hvernig arðgreiðslum skuli háttað og það undirritað af öllum landeigendum. Þetta á líka við um hjón og sambýlisfólk. Með fréttabréfinu fylgir eyðublað til þess að fylla út og eru félagsmenn beðnir um að koma eyðublaðinu undirrituðu til gjaldkera, Höllu Eiríksdóttur í pósti eða skönnuðu í tölvupósti.

Það er mikilvægt að í gögnum félagsins séu undirrituð skjöl frá landeigendum um ráðstöfun arðgreiðslna til þess að öllum reglum sé fylgt við úthlutun. Tölvupóstar eða upplýsingar veittar gegnum síma teljast ekki fullnægjandi nema þá aðeins að einn eigandi sé að jörðinni. Veiðifélagið þarf að standa skil á upplýsingum um arðgreiðslur gagnvart ríkisskattstjóra og eru þær skráðar á landeigendur þó svo að þeir taki ekki við þeim. Uppsafnaður arður er geymdur á safnreikningi veiðifélagsins þar til rétthafi geri grein fyrir sér og skilar inn viðeigandi gögnum.

Hér er hægt að sækja eyðublað vegna arðgreiðslna. Athugið að hægt er að fjölga reitum á blaðinu ef með þarf.


EYÐUBLAÐ VEGNA FYRIRSVARSMANNS JARÐAR

Í 9. gr. jarðalaga nr. 81 frá 2004 segir svo um jarðir sem eru í eigu fleiri en þriggja fjárráða einstaklinga eða lögaðila:

Fyrirsvar jarða í sameign o.fl.
Ef eigendur jarðar eða annars lands sem lög þessi gilda um eru fleiri en þrír fjárráða einstaklingar eða lögaðili er þeim skylt að tilnefna fyrirsvarsmann sem hafi umboð til að koma fram fyrir hönd annarra eigenda jarðarinnar við úrlausn mála sem lúta að réttindum og skyldum eigenda, taka ákvarðanir um daglegan rekstur og hagsmunagæslu vegna sameignarinnar, minni háttar viðhald og viðgerðir, svo og bráðnauðsynlegar og brýnar ráðstafanir sem ekki þola bið.
Fyrirsvarsmenn skal tilkynna til sýslumanns er þinglýsi þeirri tilkynningu á viðkomandi fasteign, svo og tilkynningum um breytingar á fyrirsvarsmönnum.

Hér er hægt að sækja eyðublað til útfyllingar um fyrirsvarsmanns jarðar.