Aðalfundur 2017

on

Hér með er boðað til aðalfundar Veiðifélags Jökulsár á Dal, sem haldinn verður Á hreindýraslóðum á Skjöldólfsstöðum sunnudaginn 23. apríl 2017, kl. 14:00.

Dagskrá:

Erindi gesta fundarins:

  • Erindi Þrastar Elliðasonar, fyrirsvarsmanns Strengja ehf. leigutaka.
  • Erindi Guðna Guðbergssonar, sviðsstjóra hjá Veiðimálastofnun.
  1. Skýrsla kjörbréfanefndar um atkvæðisrétt á fundinum
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  4. Umræður um skýrslu og reikninga
  5. Fjárhagsáætlun næsta árs
  6. Breytingar á samþykktum félagsins
  7. Kosningar:
    1. Kosning 2ja stjórnarmanna til þriggja ára
    2. Kosning 3ja varamanna í stjórn til eins árs
    3. Kosning 2ja skoðunarmanna og varaskoðunarmanns til eins árs.
    4. Kosning kjörbréfanefndar. Þrír aðalmenn og tveir til vara. Nefndin hafi það hlutverk að fara yfir atkvæði fundarmanna og umboð, á veiðifélagsfundum.
    5. Kosning arðskrárnefndar. Fimm aðalmenn og tveir til vara. Nefndin hafi það hlutverk að vinna að gerð arðskrár.
  8. Afgreiðsla arðskrár
  9. Önnur mál

 

Frá stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal vegna aðalfundar 2017

Eins og félagsmönnum er kunnugt um lauk arðskrárnefnd veiðifélagsins störfum sínum sl. haust og var sú arðskrá sem nefndin hafði unnið að í tvö ár lögð fyrir tvo félagsfundi, lögum samkvæmt, og samþykkt 25. nóvember 2016. Að því loknu var arðskráin send Fiskistofu til staðfestingar. Ekki bárust athugasemdir frá félagsmönnum við arðskrána þá tvo mánuði sem lög kveða á um að þurfi að líða frá því hún er samþykkt og þar til hún er staðfest.

Við skoðun Fiskistofu kom í ljós ósamræmi á milli skráðra aðila Veiðifélags Jökulsár á Dal samkvæmt samþykktum félagsins og þeirra sem taldir eru upp í framlagðri arðskrá. Þetta misræmi gerði það að verkum að Fiskistofa gat ekki staðfest framlagða arðskrá að óbreyttu. Fór Fiskistofa fram á það við félagið að endurskoða samþykktir sínar og leggja þær fyrir félagsfund,  í samræmi við 39. gr. laga um lax- og silungsveiði, og samhliða leggja fram arðskrána að nýju til samræmis við endurskoðaðar samþykktir félagsins.

Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal hefur nú yfirfarið samþykktirnar og fengið álit lögmanns á þeim breytingum sem gera þarf á þeim, er fyrst og fremst snúa að uppfærslu á upptalningu fasteigna sem teljast eiga veiðirétt í Jökulsá á Dal og þverám hennar. Þá hefur arðskrárnefnd yfirfarið framlagða arðskrá með tilliti til ábendinga Fiskistofu til þess að fyllsta samræmis sé gætt. Þar sem óskipt land er milli tveggja fasteigna hefur einingum nú verið skipt til helminga á milli þeirra svo að einingar fylgi hverri fasteign sem talin er upp í samþykktum félagsins. Þessar breytingar eru óverulegar og hafa lítil sem engin áhrif á skiptingu eininga á milli jarða í þeirri arðskrá sem fór gegnum tvo félagsfundi sl. haust.

Tillögur stjórnar um breytingar á samþykktum fylgja með fundarboði til félagsmanna og verða teknar fyrir á aðalfundinum ásamt uppfærðri arðskrá sem einnig fylgir fundarboðinu ásamt fundargerð arðskrárnefndar.

Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal hvetur félagsmenn til að fjölmenna á aðalfundinn 23. apríl næstkomandi á Skjöldólfsstöðum. Lögum samkvæmt þarf atkvæði 2/3 hluta atkvæðisbærra félagsmanna til að samþykkja arðskrá og breytingar á samþykktum. Sé fundarsókn ekki næg skal boða til annars félagsfundar og ræður þá afl atkvæða.

Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal

One Comment Add yours

  1. Gestur Jens Hallgrímsson's avatar Gestur Jens Hallgrímsson says:

    Sæll þetta er mótekið.. enginn athugasemd kv gestur

    Like

Leave a reply to Gestur Jens Hallgrímsson Cancel reply