Aðalfundur 2021

Hér með er boðað til aðalfundar Veiðifélags Jökulsár á Dal, sem haldinn verður Á hreindýraslóðum á Skjöldólfsstöðum laugardaginn 24. apríl, kl. 14:00. (Fundarboð er sent í ábyrgðarpósti til veiðiréttarhafa)

Vegna COVID verður fundurinn einnig sendur út á Zoom. Upplýsingar um það verða settar inn á heimasíðu félagsins http://www.jokla.org. Ekki verður hægt að framkvæma skriflega atkvæðagreiðslu gegnum netið og eru þeir sem ætla sér að sitja fundinn gegnum netið beðnir um að koma umboðum til einhvers sem ætlar sér að mæta í eigin persónu. Eyðublað vegna umboðs er á heimasíðunni.

Dagskrá:

  1. Erindi gesta fundarins:
    • Erindi Þrastar Elliðasonar, fyrirsvarsmanns Strengja ehf. leigutaka
    • Erindi Árna Óðinssonar, fulltrúa Landsvirkjunar
    • Erindi Jens Garðars Helgasonar, frkvstj. Laxa fiskeldis
    • Erindi Jóns Kaldal, talsmanns Icelandic Wildlife Fund
  1. Skýrsla kjörbréfanefndar um atkvæðisrétt á fundinum
  2. Skýrsla stjórnar
  3. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
  4. Umræður um skýrslu og reikninga
  5. Fjárhagsáætlun næsta árs
  6. Breytingar á samþykktum félagsins (engar fyrirliggjandi)
  7. Kosningar:
    • Kosning 2ja aðalmanna í stjórn til þriggja ára
    • Kosning 3ja varamanna í stjórn til eins árs
    • Kosning 2ja skoðunarmanna og varaskoðunarmanns til eins árs
    • Kosning kjörbréfanefndar til eins árs. Þrír aðalmenn og tveir til vara
  8. Ráðstöfun veiðiréttar 2027-2031 og hækkun leigugjalds – viðauki við samning Strengja ehf.
  9. Arðgreiðslur

      Stjórn veiðifélagsins leggur til eftirfarandi varðandi arðgreiðslur 2020 og 2021:

  • Að umsamdar leigugreiðslur fyrir árið 2020 verði innheimtar að fullu og 60% af þeim leigutekjum verði greiddar út fyrir árslok með arðgreiðslum fyrir árið 2021.
  • Að 60% af leigutekjum 2021 verði greiddar út sem arður fyrir árslok 2021. 

  • 11. Önnur mál

Meðfylgjandi er atkvæðaskrá Veiðifélags Jökulsár á Dal. Nauðsynlegt er að gerðar séu athugasemdir við atkvæðaskrána telji menn hana ranga eða tilgreiningu á því hver fari með atkvæðisrétt. Athugasemdir skulu gerðar fyrir 21. apríl og sendar formanni veiðifélagsins, Þorvaldi P. Hjarðar (hjardar@simnet.is), sem mun vísa þeim til umfjöllunar kjörbréfanefndar.

Nauðsynlegt er, ef eignarhald er dreift, jörð er eign félags eða ef ábúandi fer ekki með atkvæðisrétt, að sá sem sækir aðalfund hafi til þess skriflega heimild eða umboð sem uppfyllir formskilyrði samkvæmt lax- og silungsveiðilögum, enda kann atkvæðisréttur jarðar að falla niður ella. Þá er vakin athygli á því að mikilvægt er að veiðifélaginu sé tilkynnt um eigendaskipti á jörðum. Hafa má samband við formann kjörbréfanefndar, Þorstein P. Gústafsson, til að fá nánari leiðbeiningar ef þurfa þykir.

Hægt er að sækja eyðublöð og aðrar upplýsingar á heimasíðu félagsins http://www.jokla.org. Félagsmenn geta haft samband við stjórnarmenn um nánari upplýsingar um einstaka fundarliði.

13. apríl 2021

Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal

Leave a comment