Arðgreiðslur og aðalfundur

Arðgreiðslur fyrir árið 2019, í samræmi við samþykkt aðalfundar, voru framkvæmdar í árslok 2019 en þá höfðu flestar upplýsingar um eigendur skilað sér til félagsins. Enn vantar þó upplýsingar um einhverjar jarðir og er arður þeirra geymdur á safnreikningi hjá félaginu.

Vaninn hefur verið að halda aðalfund í apríl en það er ljóst að COVID-19 kemur í veg fyrir það. Stjórn samþykkti á fundi sínum 24. mars að stefna samt á að halda aðalfund innan tilskilins tíma skv. lögum og samþykktum, þ.e. fyrir 1. júní.

Leave a comment