Aðalfundur Veiðifélags Jökulsár á Dal 2019 verður haldinn Á hreindýraslóðum á Skjöldólfsstöðum laugardaginn 13. apríl 2019, kl. 14:00.
Dagskrá:
1.Erindi gesta fundarins:
- Erindi Þrastar Elliðasonar, fyrirsvarsmanns Strengja ehf. leigutaka.
- Erindi fulltrúa Hafrannsóknastofnunar um rannsóknir síðasta árs.
- Erindi Snævarrs Arnar Georgssonar, veiðileiðsögumanns við Jöklu.
2. Skýrsla kjörbréfanefndar um atkvæðisrétt á fundinum
3. Skýrsla stjórnar
4. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
5. Umræður um skýrslu og reikninga
6. Fjárhagsáætlun næsta árs
7. Breytingar á samþykktum félagsins (engar fyrirliggjandi)
8. Kosningar:
-
- Kosning formanns til þriggja ára
- Kosning 3ja varamanna í stjórn til eins árs
- Kosning 2ja skoðunarmanna og varaskoðunarmanns til eins árs
- Kosning kjörbréfanefndar til eins árs. Þrír aðalmenn og tveir til vara
9. Arðgreiðslur
Stjórn veiðifélagsins leggur til að arðgreiðslur 2019 verði tvískiptar:
- Að 50% af höfuðstól félagsins verði greitt út skv. arðskrá í júní.
- Að 60% af leigutekjum ársins verði greiddar út í árslok (óbreytt frá 2018).
10. Önnur mál
Kaffiveitingar verða í boði veiðifélagsins á fundinum.
Meðfylgjandi er atkvæðaskrá Veiðifélags Jökulsár á Dal. Nauðsynlegt er að gerðar séu athugasemdir við atkvæðaskrána telji menn hana ranga eða tilgreiningu á því hver fari með atkvæðisrétt. Athugasemdir skulu gerðar fyrir 10. apríl og sendar formanni veiðifélagsins, Aðalsteini Jónssyni (allij@centrum.is), sem mun vísa þeim til umfjöllunar kjörbréfanefndar.
Nauðsynlegt er, ef eignarhald er dreift, jörð er eign félags eða ef ábúandi fer ekki með atkvæðisrétt, að sá sem sækir aðalfund hafi til þess skriflega heimild eða umboð sem uppfyllir formskilyrði samkvæmt lax- og silungsveiðilögum, enda kann atkvæðisréttur jarðar að falla niður ella. Hafa má samband við formann kjörbréfanefndar, Þorstein P. Gústafsson, til að fá nánari leiðbeiningar ef þurfa þykir. Hægt er að sækja umboðseyðublað á hér heimasíðu félagsins.
Hægt er að hafa samband við stjórnarmenn um nánari upplýsingar um einstaka fundarliði.
Þá er vakin athygli á því að mikilvægt er að veiðifélaginu sé tilkynnt um eigendaskipti á jörðum.
28. mars 2019
Stjórn Veiðifélags Jökulsár á Dal