Annar félagsfundur 25. nóv. kl. 17

Þar sem ekki mættu nógu margir atkvæðisbærir veiðiréttarhafar eða umboðsmenn þeirra (21 atkvæði af 74) á félagsfundinn, sem boðaður var vegna afgreiðslu arðskrár í Brúarási 5. nóvember,  hefur stjórn boðað til annars félagsfundar föstudaginn 25. nóv. kl. 17 á Skjöldólfsstöðum. Á þeim fundi nægir einfaldur meirihluti atkvæða til að samþykkja arðskrána. Verði hún samþykkt verður gildistími hennar 8 ár en leitað var álits Fiskistofu á því hvort hægt væri að láta hana gilda aðeins til 5 ára.

Félagsmenn eru hvattir til að kynna sér gögnin sem send voru út með fundarboðinu og mæta á félagsfundinn þann 25. nóv.

 

Leave a comment