Hér með er boðað til aðalfundar Veiðifélags Jökulsár á Dal, sem haldinn verður í Brúarásskóla laugardaginn 16. apríl 2016, kl. 14:00.
Dagskrá:
1. Erindi gesta fundarins:
- Erindi Þrastar Elliðasonar, fyrirsvarsmanns Strengja ehf. leigutaka.
- Erindi Guðna Guðbergssonar, sviðsstjóra hjá Veiðimálastofnun.
- Erindi Guðna Magnúsar Eiríkssonar, sviðsstjóra lax- og silungsveiði hjá Fiskistofu.
2. Kynning arðskrárnefndar á vinnu við gerð arðskrár
3. Skýrsla kjörbréfanefndar um atkvæðisrétt á fundinum
4. Skýrsla stjórnar
5. Lagðir fram endurskoðaðir reikningar
6. Umræður um skýrslu og reikninga
7. Fjárhagsáætlun næsta árs
8. Kosningar:
- Kosning formanns til þriggja ára
- Kosning 3ja varamanna til eins árs
- Kosning 2ja skoðunarmanna og varaskoðunarmanns til eins árs.
- Kosning kjörbréfanefndar. Þrír aðalmenn og tveir til vara. Nefndin hafi það hlutverk að fara yfir atkvæði fundarmanna og umboð, á veiðifélagsfundum.
- Kosning arðskrárnefndar. Fimm aðalmenn og tveir til vara. Nefndin hafi það hlutverk að vinna að gerð arðskrár.
9. Önnur mál
Kaffiveitingar verða í boði veiðifélagsins á fundinum.